Hér verða óskráðar reglur sem Steingrimur GH fer eftir, ykkur er frjálst að taka til athugunar að fara eftir þeim. Eins og oftast á þessari síðu eru nýjustu reglurnar efst: 19 - Elskaðu óvini þína 18 - Ef eitthver vill ekki segja þér eitthvað, "deal with it" 17 - Mundið að fólk er fífl 16 - Alltaf skal skilja setuna eftir uppi 15 - Ef það er kanna af vatni með klökum í má ekki stela klökunum ofan í eigið glas 14 - Svo það verði minna að vaska upp skal alltaf reyna að óhreinka sem fæst leirtau 13 - Ekki hafa valmyndir á DVD diskum með tónlist og grafík eins og í tölvuleik 12 - Skoðaðu heiminn 11 - Ekki breita listaverki eftir að það er búið að frumsýna það 10 - Ef eitthver hringir og skellir á vegna
inneignaleysis skaltu ekki hringa til baka 9 - Þú skalt ekki neyta eiturlyfja, ekki reykja sígarettur og ekki drekka áfengi 8 - Mindaðu röð við öll tækifæri, líka í bíó og inn á tónleika 7 - Þú má ekki undir neinum kringumstæðum skilja eftir rusl í náttúrunni 6 - Ekki gera endurgerðir af bíómyndum nema að upprunalega myndin sé léleg 5 - Ekki gera framhald af bíómynd bara af því hún var vinsæl 4 - Þú skalt ekki kaupa neitt í sjoppunni í hléi kvikmyndahúsa (sjálfsali er ekki sjoppa) 3 - Ef krakkarnir þínir eru illa upp aldir, ekki kenna skólanum um 2 - Mundu að peningar skipta ekki máli, þessvegna áttu að gera eitthvað annað ein eiða þeim 1 - Það má ekki pissa bak við hurð |