Update Desember 2007: Ég kom heim í maí 2007 og var þá búinn að ferðast til tuttugu landa á tíu mánuðum. Hér er það sem ég skrifaði áður en ég fór: Frá og með 2 ágúst 2006 er ég á heimsreisu. Þetta byrjaði allt þegar ég var á leiðinni með að klára Kvikmyndaskólann í Febrúar 2005. Ég fékk þessa tilfinningu um að vera algjörlega frjáls. Búinn með skóla og frjáls ferða minna. Það lá eitthvernvegin í augum uppi að fara að ferðast. Og ég ákvað að safna mér fyrir heimsreisu. Ég byrjaði að vinna upp á Kárahnjúkum í Maí 2005 og hætti í Maí 2006. Í ágúst 2006 átti ég 1.4 milljónir og ég mun ferðast þangað til sá peningur er búinn. Stutt lýsing á hvernig mín ferð verður er að ég byrja í Keníu með Krung ferð, en skyl svo við hópinn í London 20 ágúst. Óvíst er hvert ég fer þaðan. Þetta horn er skipt í fimm hluti, síður sem ég mæli með til að undirbúa heimsreisu, það sem ég ætla að gera á undan heimsreisunni, það sem ég ætla að taka með mér í heimsreisuna, það sem ég ætla að gera í heimsreisunni og það sem ég ætla að gera eftir heimsreisuna. Síður sem ég mæli með til að undirbúa heimsreisu!World Healt
Organation er með upplýsingar um
sjúkdómahættur Það sem ég ætla að gera á undan heimsreisunni!Eitt það mikilvægasta er
að safna pening,
safna pening, spara, spara. Ég er í
nokkuð
góðri stöðu til þess,
ég á ekki
bíl, ég er í góðri
leigu og á
ekki börn. En það
þýðir ekki að
ég ætli ekki að spara. Þvert
á
móti, ég mun ekki eiga mér
líf fyrr en
ég er búinn að safna mér fyrir
ferðinni.
Vinna, borða, sofa, það verður
lífsmynstrið. Það sem ég ætla að taka með mér í heimsreisuna! - Upptökuvélina mína
(lítinn þrífót og
sólarorkuhleðslutæki) Og svo er fullt af smádóti sem ég nenni ekki að telja upp. Það sem ég ætla að gera í heimsreisunni!Ég ætla bara að hafa það á hreinu. Ég mun ekki blogga en ég mun hins vegar halda dagbók og taka upp á upptökuvélina mína allt sem margvert þykir. Þannig að þið verðir bara að vera þolinmóð og sjá myndina mína þegar ég kem til baka. Aðalathriðið er að vera alltaf með upptökuvélina við hendina og taka upp hvað sem er, sama hvort það sé að panta mat, tala við fólk eða ganga kínamúrinn. Það eru nokkrir staðir sem
ég er
spenntari fyrir en aðrir. Missionið er að fara
eitthvað
á allar heimálfurnar, hér er
smá
umfjöllun um hvað ég ætla
að gera á
hverri og einni: Það sem ég ætla að gera eftir heimsreisuna!Ef ég kemst lifandi af þessari heimsreisu þá ætla ég að finna mér klippara sem getur sett allt efnið, sem ég hef tekið upp, í kristilega lengd. Ég nenni sko ekki að gera það sjálfur, en ég hef nokkrar hugmyndir um hvernig ég vil hafa það. Síðan fer bara eftir því hvort þetta sé áhugavert, hversu langt þetta er og hvers eðlis hvert ég fer með þetta. Það gæti verið að ég seti myndina í sýningu í kvikmyndahúsum, beint á spólu, video eða bara í kennslutíma. Svo þegar ég verð kominn heim hef ég líka loksins tíma til að leita mér að kærustu. |